Heimasíða Golfklúbbs Vestarr, stofnár 1995

14.05.2012 13:20

Vinaklúbbakeppni 2012

Fundur verður haldinn í Sögumiðstöðinni þriðjudaginn 15 maí kl. 20.30

Fundurinn er bæði fyrir karla og konur

Leikið er í báðum flokkum þann 19 maí.
Karlar spila á Bárarvelli og konur fara á Víkurvöll

Farið verður yfir ýmis atriði sem skipta máli fyrir keppnina

1. Hverir eru sveitarstjórar,
2. Ferðir í Austurbæinn (Stykkishólm)  konur
3. Veitingar á Bárarvelli,


Sveitalið Vestarr 2011, karlar og konur

13.05.2012 12:34

Vinaklúbbakeppni kvenna

Vinaklúbbakeppni kvenna hjá Mostra og Vestarr

Á laugardaginn 19 maí spila konur í Vestarr og Mostra á Víkurvelli fyrri dag í vinaklúbbakeppni félaganna. Konur í Vestarr skrá sig á Golf.is og skrá sig þar á 10 teig.

Konur í Vestarr eru hvattar til að fjölmenna og taka þátt í skemmtilegu mót.

Samkvæmt langtímaspá veðurstofunar er útlit fyrir hæglætis veður á laugardag

Á fundi formanna og mótanefnda klúbbanna var þessi dagsetning ákveðið og var það
einróma samþykkt að hafa fyrri dag keppninar í karla og kvennaflokki á sama leikdegi.

Seinni leikdagur kvenna verður svo í haust á Báravelli,


10.05.2012 15:08

Kríumótið í Staðarsveit

Nágrannar okkar í Golfklúbbi Staðarsveitar halda golfmót á laugardag.
Upplagt fyrir kylfinga Vestarr að taka þá og fá æfingu fyrir komandi keppni við Mostra í vinaklúbbakeppninni
Hvetjum sem flesta til að taka þátt

Skráning á Golf.is

Nú förum við hressilega á stað og höldum stórmót til heiðurs Kríunni.

Landsbankinn styrkir þennan viðburð af stórhug.

Puntakeppni. 1.2.3. verðlaun auk nándarverðlauna á 3. og 8. braut.

Keli vert tekur vel á móti öllum sem þurfa næringu.

06.05.2012 14:10

Bikarkeppni Vestarr 2012

Búið er að opna fyrir skráningu í bikarkeppni Vestarr 2012

Skráning er á Golf.is

Dregið verður í Golfskála þann 20 maí kl. 16.00 á kynningarfundi um sumarstarfið.

Reglur um keppnina hafa verið uppfærð og eru keppendur hvattir til að lesa þær og kunna. Ef upp kemur ágreiningur skulu keppendur leita til dómar.


Reglugerð fyrir Bikarkeppni GVG.

 1. grein

Leika skal golf í einu og öllu eftir reglum "The Royal and Ancient Golf Club of St. Andrews and The United States Golf Association". Staðarreglur gilda eins og þær eru hverju sinni. Leikið er með fullri vallarforgjöf, en leikin er 18. holu holukeppni í hverri umferð. Verði keppendur jafnir eftir 18 holur skal spila 4 holu bráðabana þangað til úrslit fást. Spila skal  1,2,8 og 9 holu með forgjöf.

 2. grein

Leikmenn skulu koma sér saman um leiktíma og spila keppendur samkvæmt leikreglum um holukeppni saman. Komi leikmenn sér ekki saman um leiktíma þannig að þeir ljúka ekki leiknum innan tímaramma, falla báðir leikmenn úr keppni. Mæti leikmaður ekki til leiks fellur hann úr keppni og hinn telst sigurvegari og kemst áfram í næstu umferð.

 3. grein

Komi upp ágreiningur um reglur, skor eða annað skulu leikmenn fá úrskurð dómara mótsins. Úrskurður dómara er endanlegur. Mótanefnd skipar dómar

 4. grein

Leikmaður á rétt á vitneskju um forgjöf keppinautar síns eins og hún er þegar leikur hefst og er skylt að gefa keppinauti sínum upp eigin forgjöf eins og hún er á leikdegi.Gefi leikmaður upp ranga vallarforgjöf dæmist hann sjálfkrafa úr keppni.

 5. grein

Leikmenn skulu leytast við að trufla ekki leik hjá andstæðingi sínum á neinn hátt. Framkoma leikmanna skal vera tilhlýðileg að öllu leyti. Brot geta varðað frávísun.

 6. grein

Mótanefnd dregur leikmenn saman í fyrstu tvær umferðir, en fjöldi leikja þar ræðst af þátttöku og miðar að því að í næstu umferð séu leikin 32/16/8 manna úrslit.  (Ef t.d. 26 skrá sig þá þarf að leika 26-16=10 leiki þannig að næsta umferð er þá 16 manna úrslit, en dregið er hver mætir hverjum í þeirri umferð.

Þegar leikmenn eru dregnir saman á að prenta nöfn allra sem eru skráðir á sambærilega miða, brjóta þá saman og blanda þannig að alger tilviljun ráði hverjir leika saman.

  7. grein

 Tímamörk:

Skráningu skal lokið fyrir 20 maí.

Fyrstu umferð skal lokið ekki síðar en 11 júní

Annarri umferð skal lokið ekki síðar en 29 júní

Þriðju umferð skal lokið ekki síðar en 20 júlí

Fjórðu umferð skal lokið ekki síðar en 1 ágúst

Fimmtu umferð skal lokið ekki síðar en 15 ágúst

 8. grein

Sigurvegari hlýtur farandbikar sem er gefinn af Toyota á Íslandi og skal hann afhentur á lokahófi GVG að hausti.

01.05.2012 13:42

Forgjafarkerfið


Ýmsar breytingar á forgjafarkerfinu taka gildi í maí

Ýmsar breytingar á forgjafarkerfinu taka gildi í maí

Valur Jónatansson skrifar þann 01.05 2012

Núna í maí munu taka gildi ýmsar breytingar á forgjafarkerfinu, sem hefur verið í gildi á Íslandi síðustu ár. Þetta á við fyrst og fremst í sambandi við skráningu á æfingahringjum til forgjafar. Þá verður reiknuð leiðrétting gráa svæðisins (CBA) sem kemur í staðinn fyrir CSA. Í 80% tilfella verða færri leiðréttingar í mótum vegna nýrrar aðferðafræði.

Þegar kylfingur ætlar að nota æfingaskor til forgjafar þarf hann að staðfesta það við skráningu í rástímann, þ.e.a.s áður en hann hefur leik. Þegar hann hefur lokið leik og skráir skorið inn á www.golf.is þá verður hann að fá það staðfest af skrifara áður en það gildir til forgjafar. Skrifarinn fær tilkynningu (í gegnum SMS eða tölvupóst) um leið og kylfingurinn hefur slegið inn skorið á golf.is.

Æfingaskor eru ógild sem ekki fara fram við forgjafarskilyrði eða ekki samkvæmt Golfreglum. Ef leikið er á vetrartíma verður leikmaður að ganga úr skugga um að forgjafarnefnd klúbbsins leyfi skráningu á æfingaskori og að öllum ákvæðum um forgjafarskilyrði sé fullnægt.

Stundum er golfumferð leikin við aðstæður sem ekki eru "eðlilegar" með tilliti til mats á vellinum, s.s. í afleitu veðri eða mjög erfiðri "uppsetningu" vallar, en innan EGA forgjafarkerfisins má samt nota slíka umferð til forgjafarreiknings, að því tilskyldu að öllum öðrum forgjafarskilyrðum fyrir gilda umferð hafi verið fullnægt. En þegar aðstæður eru "óeðlilegar" að því marki að það væri ósanngjarnt að láta árangurinn hafa áhrif á forgjöf leikmanns ætti að taka tillit til þess til mótvægis. Í EGA forgjafarkerfinu er vísað til þessarar jöfnunar sem reiknaðrar leiðréttingar á gráa svæðinu.

Við útreikning CBA er almennur árangur leikmannanna með tilliti til gráa svæðisins borinn saman við reiknaðan væntanlegan árangur leikmannanna við "eðlilegar" aðstæður, og sé árangurinn utan ákveðinna settra marka, er gráa svæði hvers einstaks leikmanns lagfært. Leiðréttingin getur leitt af sér hækkun (sé almennur árangur miklu betri en búist var við) eða lækkun (sé almennur árangur miklu verri en búist var við), miðað við þau mörk sem leyfð voru til að teljast innan gráa svæðisins. Á hinn veginn getur það skeð að skilyrðin séu svo afleit að árangurinn geti aðeins gilt til lækkunar forgjafar. 

CBA gildir í 18 holu gildum keppnum aðeins, þ.e. ekki fyrir 9 holu skor aða æfingaskor. Tilgangurinn með CBA er að innleiða enn einn þátt sanngirni í EGA forgjafarkerfið. Einstakir leikmenn þurfa ekki að áhyggjur af CBA útreikningnum sem framkvæmist sjálfvirkt á golf.is.

Sjá nánar EGA forgjafarkerfið

(Heimild: heimasíða GO og GSÍ)

23.04.2012 17:52

Glæsilegt hjá Hrafni Gulla



Hrafn valinn nýliði ársins


Austfirski kylfingurinn Hrafn Guðlaugsson var í gær valinn nýliði ársins 2012 í Southern States Athletic Conference deildinni í bandaríska háskólagolfinu. Hrafn hefur í vetur leikið með Faulkner háskólanum frá Alabama og staðið sig mjög vel.

Hrafn verður 22ja ára gamall í ár og lék meðal annars í Svíþjóð á síðasta ári. Hann sýndi hvað í honum býr á sínu fyrsta tímabili í háskólagolfinu og hlaut því þessi eftirsóttu verðlaun í deildinni.

Lokamótið hjá Hrafni og félögum í Faulkner skólanum hefst í dag þegar Southern States Athletic Conference mótið fer fram.

Hrafn er sonur Gulla Harðar

18.04.2012 17:40

Stjórnarfundur

Stjórnarfundur 18.04.2012

Mættir Pétur, Ásgeir, Þórður, Dagbjartur, Kjartan, Systa, Páll, Guðni, Anna María

1.    Auglýsing við afleggjara inn á golfvöll, samþykkt að fara í þá vinnu

2.    Yfirferð á vélum. Hákon og Benedikt búnir að yfirfara vélar. Vélar Sem þarf að laga sendar í viðgerð.

3.    Vinnudagar: Sent verður út SMS þegar veður leyfir fyrir vinnudaga. Upplýsingar fyrir hvern vinnudag verður settur á www.vestarr.net

4.    Starfmenn á velli. Hákon og Benedikt ráðnir á völlinn í sumar. Starfmenn byrja 15.05.2012 Aðrar ráðningar verðar kláraðar seinna.

5.     Mótaskrá komin á www.golf.is. ATH það gætu komið inn smávægilegar breytingar. Þórður og Dóra taka að sér að halda fyrsta paramót sumarsins. Boðað verður til móts með sms. Dregið verður í loka móts í næstu nefnd og ber sú nefnd ábyrgð á að næsta mót verði haldið.

6.    Allir sem mæta á Báravöllinn skrái sig í tiltekna bók sem verður í skála. Gert til að fylgjast með umferð á velli.

02.04.2012 14:27

Drög að mótadagskrá

2 Fundur Mótanefnda Vestarr.

30 Mars 2012 kl. 9.30

Haldinn á Skrifstofu HSH.

 

Mættir, Kjartan Sigurjónsson, Garðar Svansson, Gunnar Ragnar Hjartarson,

Forföll, Gunnar Ragnarsson, Eðvarð F Vilhjálmsson, Dóra Henriksdóttir og Helga Reynisdóttir (öll í golfferð eða á leið í slíka)

 

1.       Mótadagskrá 2012.  Farið var yfir dagskrá sumarsins. Ekki er útlit fyrir að Landsbankinn verði með mótaröð hjá Vestarr þetta árið.  Lagt til að drög að dagsetningum verði birt á heimasíðu félagsins og óskað eftir ábendingum.

2.       Lagt til að opin fundur verði svo haldinn kl. 20.00 þann  20 apríl í golfskálanum, þar sem farið verði yfir sumardagskrá og starf félagsins.

3.       Samstarf klúbbanna á Snæfellsnesi, Fundur 2 apríl kl 20.00 í Hótel Framnes.  Dagbjartur og Kjartan mæta fyrir hönd Vestarr.

4.       Bikarkeppni Vestarr, Kjartan ætlar að taka upp reglugerð bikarkeppninnar á næsta fundi stjórnar Vestarr

 \files\ýmis skjöl\mótaskrá 2012.xls


08.02.2012 00:11

Fundur hjá mótanefnd


Fundargerð Móta- og forgjafarnefndar Vestarr

Mánudaginn 30, janúar 2012

Skrifstofa HSH, Grundarfirði

 

Mættir, Kjartan Sigurjónsson form nefndarinnar, Dóra Hinriksdóttir, Helga Reynisdóttir,

Garðar Svansson, Gunnar Ragnarsson og Gunnar Ragnar Hjartarson.

 

Dagskrá

1. Uppfærsla á forgjöf samkvæmt ráðleggingum GSÍ.

Garðar fór yfir þær tillögur á breytingu forgjafar sem lagaðar eru til að hálfu GSÍ. Umræður voru um forsendur breytinga og ástæður. Tillögurnar voru samþykktar.


2. Drög að mótaskrá komandi sumars.

Nefndin fór yfir mótaskrá síðasta sumars  og mögulega dagskrá komandi sumars. Lagðar voru til breytingar á dagsetningu  nokkra  móta. Einnig var nefndin sammála um að vera í samstarfi við nýliðunarnefnd um framkvæmd hjóna og paramóta. Umræða var um bikarkeppni Vestarr og lagt til að stjórn Vestarr endurskoði reglugerð keppninnar, en komið hafa fram ábendingar um að skoða þarf bráðabana. Umræða var um hvort ráðlegt væri að leggja til breytingu á forgjöf keppenda en niðurstaðan var að ekki þætti ástæða til að gera breytingu á þeim lið keppnisformsins.


3. Önnur mál

a.       Mönnun nefndar. Nefndarmenn voru sammála um að æskilegt væri að fá 2 til 3 aðila til viðbótar í nefndina.

b.      Næsti fundur ákveðin 22 febrúar kl 17.00 á skrifstofu HSH

 

 


26.01.2012 17:52

Fundur hjá mótanefnd

Fundur hjá mótanefnd á næsta mánudag.

Dagskrá

1. Uppfærsla á forgjöf samkvæmt ráðleggingum GSÍ.
2. Drög að mótaskrá komandi sumars.
3. Önnur mál

Mótanefnd er að mestu orðinn full mönnuð en ef einhver hefur
áhuga á að taka þátt í starfinu þá vinsamlegst hafið samband við
Kjartan Sigurjóns form mótanefndar í síma. 8600714

15.01.2012 13:57

Félagsgjöld 2012

Sælir félagar.  Félagsgjöldin 2012 verða þau sömu og undanfarin ár.

Þeir sem vilja spara gjaldkera smá tíma og fyrirhöfn geta lagt inn fyrir gjöldunum á reikning:
0191-26-36   -   kt 621295-2689
Láta koma fram í skýringum fyrir hvern er greitt, eða senda tölvupóst í djk@djk.is eða hringja bara í Þórð Magg í síma 898-5463

Annars verða gjöldin innheimt með sama sniði og undanfarin ár, í apríl með greiðsluseðli.

Bestu kveðjur, ÞM

09.01.2012 22:39

Stjórnarfundur

Stjórnafundur haldinn 7.01.2012 kl: 14.00 en vegna leikaraskaps gjaldkera var fundi frestað til 16.00, Gjalkeri baðst afsökunar og bauð uppá kaffi.
Mættir: Dagbjartur, Bryndís, Anna María, Helga Ingibjörg, Kjartan, Pétur Vilbeg, Ásgeir, Þórður.
Vetrarstarf:
1.     Verklýsing nefnda = yfirfara verklýsingar.
2.    Fjáöflunarnefnd =  fjáöflunarnefnd fari af stað nú í janúar, PVG verður tengiliður við Arion Banka.
3.    Skilti á velli = koma upp skiltum fyrir sumarið, bæði á gám og 1.teig. Einnig að fá leyfi fyrir skilti við Vindás.
4.    Steypa flaggstangir, klára að ganga frá gám fyrir sumarið.
5.    Byrja undirbúning útgáfu fréttablaðs.
6.    Búa til facebooke síðu fyrir klúbbinn.
7.    Byrja undirbúningsvinnu fyrir skemmtun til fjáröflunar liðum sem taka þátt sveitakeppni fyrir hönd klúbbsins.
8.    Skemmtimót í sumar verða í höndum unglinga-nýliðanefndar og kvennanefndar.
9.    Fá íþróttahús undir æfingaaðstöðu fram á vor. Verður nánar auglýst síðar.
10.    Búið er að fjárfesta í öryggismyndavélum og verða þær komnar upp fyrir sumarið.   

07.01.2012 22:02

Aðalfundur

Aðalfundur Vestarr 29.nóvember 2011                                                                                                                  
Haldinn í Sögumiðstöðinni kl: 18.00.
Dagskrá:
1.    Kosning fundarstjóra
2.    Kosning fundaritara
3.    Skýrsla stjórnar og framkvæmdir á liðnu ári
4.    Endurskoðaðir reikningar lagðir fram
5.    Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og ársreikninga
6.    Framkomnar tillögur og fjárhagsáætlun
7.    Kosning formanns
8.    Kosning gjaldkera
9.    Kosning og /eða tilnefning í aðrar nefndir, sbr. 8.grein.
10.    Kosnir tveir endurskoðendur og einn til vara
11.    Önnur mál

1.    Fundarstjóri Þórður Magnússon

2.    Fundaritar Anna María Reynisdóttir

3.    Pétur gefur skýrslu stjórnar. Sumarið fór rólega af stað hjá okkur eins og öðrum klúbbum á landinu
vegna kulda, mótum vara frestað og fáir nentu að spila golf af einhverju viti í maí og framan af júní.  
Mörg stór verkefni voru í gangi í sumar , Marteinn afrekaði mikið auk þess sem fjórir starfsmenn voru við vinnu á velli.
Verkefni sem meðal annars voru unnin, klæðning á gámum fyrir settageymsla og vinnuskúr, nýtt æfingasvæði,
breytingar á bílastæði, gróðursetning í stórum stíl, lenginging 2. Brautar og uppbyggingu á nýjum karlateig.
Að auki var búið til framtíðarskipulag fyrir golfvöllinn. Stærsta málið í náinni framtíð er að það þarf að taka upp flatirnar,
en fyrsti áfangi í því verkefni var unnin í sumar þar sem búinn var til grasbanki.
Árangur í sveitakeppni GSÍ var frábær, bæði  í golfi en ekki síður í framkvæmd, en klúbburinn hélt 5. Deild karla í sumar
og allir þátttakendur voru alsælir með framkvæmd mótsins og ástand vallarins. Margir komu að þessu verkefni bæði sem
keppendur og starfsmenn og er þeim þakkað hér með. Kvennaliðið mun leika í efstu deild að ári í fyrsta sinn þar sem
spilað verður á 18. Holu velli Kjalar í Mosó. Karlasveitin fór líka upp um deild og mun spila í 4. deild í Hveragerði næsta sumar.
Íslandsmót 35 ára og eldri var tekið með trompi af klúbbmeðlimum.  Ágúst Jónsson vann sinn flokk og varð Íslandsmeistari í 4. flokki karla,
Jón Björgvin Sigurðsson  þriðji. Jón Kristbjörn Jónsson varð í 2. sæti í öðrum flokki karla og Anna María Reynisdóttir varð í 2. sæti í þriðja flokki kvenna.
Fyrsta tilraun okkar til að halda bikarkeppni gekk mjög vel og vonandi er það mót komið til að vera. Mótadagskrá var annars með hefðbundnu sniði sem er
frábært þar sem við héldum öllum stærstu styrktaraðilum mótanna.
Vel gekk að safna styrkjum, en margir koma að því að safna fé fyrir klúbbinn.  Klúbburinn er orðinn skuldlaus sem er með ólíkindum þar sem við höfum
staðið í miklum framkvæmdum og fjárfestingum allt frá upphafi.
Félagsmenn eru orðnir um 190, en í vor var undirritaður samstarfssamningur við golfklúbb starfsmannafélag Arion banka þar sem við fáum ákveðna
þóknun fyrir það að halda utan um þeirra skráningu hjá golfsambandinu. Félagsmenn okkar eru um 100, einhver fækkun varð frá í fyrra í þeim hópi.

4.    Endurskoðaðir reikningar. Þórður fer yfir reikninga og rekstur klúbbsins. Klúbburinn var rekinn með tæplega 2,2 miljóna hagnaði
á þessu rekstrarári. Rekstrarútgjöld voru 7.875.305.- en rekstrartekjur voru 10.145.876.- . Klúbburinn á 18.801.510.- í eigið fé og er skuldlaus
sem er alveg frábær árangur. Hægt er að skoða ársreikninga inná heimasíðu www.vestarr.net  og eins að fylgjast með daglegu bókhaldi.


5.    Skýrsla stjórnar samþykkt, ársreikningar samþykktir.

6.    Þórður leggur fram fjárhagsáætlun næsta árs. Rekstartekjur eru áætlaðar 9.215.þús, rekstrargjöld áætluð 8.070.þús,
hagnaður ársins áætlaður 1.145.þús. Áætlaðar fjárfestingar 1.100 þús. Fjárhagsáætlun samþykkt.
Ein tillaga barst um breytingu á stjórn.Þar sem kvennanefnd færi út úr stjórn. Tillaga féll á jöfnu.

7.    Formaður Dagbjartur Harðarson

8.    Gjaldkeri Þórður Magnússon, ritari Anna María Reynisdóttir

9.    Formenn nefnda kosnir                                    
Mótanefnd             Kjartan Sigurjónsson                
Vallarnefnd            Ásgeir Ragnarsson                    
Unglinga og nýliðanefnd        Pétur Vilberg Georgsson                
Skálanefnd             Helga Ingibjörg Reynisdóttir (Systa )        
Kvennanefnd                     Bryndís Theodórsdóttir
Fjáröflunarnefnd         Guðni E. Hallgrímsson

10.    Endurskoðendur Deloitte hf. og G. Smári Guðmundsson, Freydís Bjarnadóttir til vara.
      11. Önnur mál. Dagbjartur Harðarson nýr formaður þakkkar traustið og þakkar einnig fráfarandi formanni Pétir Vilberg fyrir gott starf. Fundi slitið kl: 19:20

03.12.2011 15:30

Aðalfundur Vestarr 29 nóv.

Aðalfundur Vestarr var haldinn 29 nóv 2011.

Þórður Magg var kosinn fundarstjóri.
Fundarritari var kosin Anna María Reynisdóttir.
Pétur las skýrslu stjórnar, fór yfir verkefni síðasta árs.  Skýrsla stjórnar var samþykkt með lófaklappi.
Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.  Þar var það helsta að klúbburinn er skuldlaus og hagnaður ársins var 2.191.621 kr.  Hér er ársreikningurinn.
Lögð var fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2012.
Voru reikningar og fjárhagsáætlanir samþykktar samhljóða.
Lögð var fram breytingartillaga á reglum félagsins vegna kvennanefndar sem féll á jöfnu.
Dagbjartur Harðarson var kjörinn nýr formaður klúbbsins.
Ritari var kjörin Anna María Reynisdóttir.
Gjaldkeri, Þórður Magnússon, á enn eitt ár eftir af sínu kjörtímabili.
Formenn annarra nefnda voru kosnir svo:
Ásgeir Ragnarsson formaður vallarnefndar
Kjartan Sigurjóns formaður mótanefndar
Systa Reynis formaður skálanefndar
Bryndís Theodórs formaður kvennanefndar
Pétur Georgsson formaður nýliðanefndar
Guðni E Hallgrímsson formaður fjáröflunarnefndar.
Endurskoðendur voru kosnir.
Nýr formaður hélt tölu og þakkaði fráfarandi formanni, Pétri Georgssyni, fyrir góð störf.
Engin önnur mál voru og fundið var slitið.

  • 1

Vafraðu um

Flettingar í dag: 178
Gestir í dag: 47
Flettingar í gær: 388
Gestir í gær: 61
Samtals flettingar: 267702
Samtals gestir: 54748
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:24:15

Tenglar